Afbrigði um dagskrármál

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 13:45:37 (2337)

1995-12-21 13:45:37# 120. lþ. 76.98 fundur 161#B brtt.# (afbrigði við dagskrá), KÁ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[13:45]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Það er alveg nauðsynlegt ekki aðeins að gera hlé heldur einnig að draga þessa tillögu til baka, eftir því ég fæ best séð, því að í þessari brtt. er verið að vísa í b- og c-lið 48. gr. Í 48. gr. upphaflegs frv. er ekkert til sem heitir c-grein, aðeins greinar a og b. Þó að breytingar hafi orðið á röð greina þá er hvergi í nágrenninu að finna neinn c-lið þannig að hér eru einhver mistök á ferð sem verður að leiðrétta hvert svo sem innihaldið er.