[16:19]
Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég skal endurtaka það sem ég taldi hafa komið fram í fyrri ræðu minni. Að mínu mati mundi 300 millj. kr. ríkisábyrgð duga í dag til þess að koma í veg fyrir að verkið félli út. Það er mitt mat.
Ég taldi mig líka segja frá því að niðurstaða okkar flutningsmanna var sú að með því að veita heildarábyrgðina upp á þúsund millj. værum við í sjálfu sér að tryggja betur stöðu ríkissjóðs þó að það sé sannanlega rétt að heilar 400 millj. í þennan veg séu náttúrlega hlutur sem ætti að öllu eðlilegu að vera inni í fjárlögum. Þetta samsvarar hækkun fjárlaga. Ég er ekki að draga neitt dul á það. Ég met það svo. En það er þessi eilífi hráskinnaleikur um þessar tölur og niðurstöður fjárlaga sem neyða menn til þess að taka út verkframkvæmdir og koma svo með það hinum megin í nafni ríkisábyrgðar. Mér finnst þetta sem nýliða hér mjög einkennileg vinnubrögð og við hljótum að taka það til endurskoðunar eins og ég lagði til að við tækjum vegagerðina út úr A-hlutanum.
Varðandi spurningu hv. þm. um hlut Spalar taldi ég mig hafa sagt það áðan að mér finnst hlutur þessa fyrirtækis mjög vondur. Þó að þessu fyrirtæki hafi tekist það sem hann ætlaði sér, að raða upp vegaframkvæmdum upp á nýtt, er hlutur þess samt mjög vondur. Ég tel að samskiptin við það séu ekki til fyrirmyndar undir neinum kringumstæðum.