Lánsfjárlög 1996

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 17:13:02 (2381)

1995-12-21 17:13:02# 120. lþ. 76.4 fundur 43. mál: #A lánsfjárlög 1996# frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[17:13]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Með samningi sem undirritaður var í Reykjavík 23. júní 1993 við Spöl hf. var gengið svo frá 6. gr. samningsins að 7. tölul., svohljóðandi: ,,35% af nettóhagnaði fyrirtækisins ár hvert eftir arðgjöf og skatti``, var felldur út. Þannig að það er alveg ljóst af þessu að síðasta ríkisstjórn taldi samninginn, eins og upphaflega var frá honum gengið, ekki viðunandi.