Lánsfjárlög 1996

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 17:19:08 (2384)

1995-12-21 17:19:08# 120. lþ. 76.4 fundur 43. mál: #A lánsfjárlög 1996# frv., Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[17:19]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti hefur heyrt óskir hv. þingmanns og reyndar fleiri hv. þingmanna. Málið er komið frá nefnd, það hefur fengið umfjöllun, hér liggur fyrir samhljóða álit frá meiri hluta nefndarinnar og málið er komið til umræðu í þinginu. Margir hv. þingmenn vilja halda áfram að ræða málið og að það fái þinglega meðferð. Því er það er niðurstaða forseta að hann mun ekki beita sér fyrir því að fresta umræðunni. Það er annað mál hvað nefndarmenn í efh.- og viðskn. eru að hugsa um.