Fjárlög 1996

Föstudaginn 22. desember 1995, kl. 12:40:40 (2508)

1995-12-22 12:40:40# 120. lþ. 77.3 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur


[12:40]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég tel að farið hafi verið inn á mjög vafasamar brautir þegar farið var að krefjast innritunar- eða aðkomugjalda hjá heilsugæslustöðvum fyrir fáeinum árum. Ég tel að þessi gjöld eigi að fella algerlega niður, ekki hækka þau, og segi nei.