[17:09]
Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta var hið merkasta innlegg frá hæstv. samgrh. Hann mundi allt í einu eftir því að til væri landshorn sem héti Norðausturland og er ekki samstætt kjördæmi heldur deilist það á milli tveggja kjördæma. Ég ætla ekkert að hafa af ráðherranum að því leyti að ástand vega á þessu landshorni er harla bágt. Þetta eru tillögur um að koma Vopnafirði í traust samband við landsvegakerfið og leggja góðan byggðaveg með ströndum norður um og um Axarfjarðarheiði til að koma þessum landshluta í gott samband við vegakerfi landsins.