Byggingarlög

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 21:21:39 (7079)

1996-06-03 21:21:39# 120. lþ. 158.24 fundur 536. mál: #A byggingarlög# (raflagnahönnuðir) frv. 92/1996, HG
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[21:21]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Eins og kom fram hjá hv. formanni nefndarinnar er þetta mál ekki í þeim búningi sem væntanlega verður fyrir afgreiðslu þess. Því miður var málið ekki unnið til hlítar áður en það var lagt inn þannig að það kemur til breytinga milli 2. og 3. umr. en væntanlega verður hægt að afgreiða það í samkomulagi fyrir þinglok.