Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 278 . mál.


514. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um framkvæmd Íslendinga á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sáttmála um afnám alls misréttis gegn konum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hvaða athugasemdir gerði nefnd Sameinuðu þjóðanna við framkvæmd Íslendinga á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er fulltrúar Íslands voru kallaðir á fund hennar í Genf nú í janúar? Hvaða skýringu gáfu íslensk stjórnvöld?
    Hvaða athugasemdir gerði nefnd Sameinuðu þjóðanna við framkvæmd Íslendinga á sáttmála Sameinuðu þjóðanna um afnám alls misréttis gegn konum er fulltrúar íslenskra stjórnvalda voru kallaðir á fund hennar nú í janúar í New York? Hvaða skýringar gáfu íslensk stjórnvöld?


Skriflegt svar óskast.