Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 446 . mál.


778. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 80/1987, með síðari breytingum.

Flm.: Svavar Gestsson.



1. gr.


    Við 81. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Áður en kjósandi gerir grein fyrir sér getur hann óskað eftir því við kjörstjórn að umboðsmenn lista fái ekki að vita nafn hans og ber henni að verða við þeirri ósk.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt 31. gr. stjórnarskrárinnar skulu alþingismenn kosnir leynilegri hlutbundinni kosningu. Samkvæmt kosningalögum er umboðsmönnum þeirra lista sem í kjöri eru heimilt að fylgjast með framkvæmd kosninga, m.a. með því að sitja í kjörfundarstofu. Með þessu fá flokkarnir upplýsingar um hverjir þeirra sem á kjörskrá eru hafa neytt kosningarréttar síns. Þær eru síðan nýttar til þess að hafa samband við hugsanlega kjósendur listans sem ekki hafa kosið en listinn telur æskilegt að kjósi, svokölluð kosningasmölun. Kjósandi hlýtur að eiga rétt á því, í landi þar sem ekki er skylda að greiða atkvæði við alþingiskosningar, að ekki sé haft eftirlit með því hvort hann nýti atkvæðisrétt sinn eða ekki. Taka verður allan vafa af um að hugtakið „leynileg kosning“ nái einnig til þessa atriðis og því er þetta frumvarp flutt. Er til þess ætlast að kjörstjórn tryggi kjósendum þann rétt sem hér er gert ráð fyrir og að hún beiti til þess þeim aðferðum sem æskilegar teljast.