Ferill 508. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 508 . mál.


909. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um símgjöld stjórnmálasamtaka.

Frá Kristínu Halldórsdóttur.



    Hvaða afslátt frá gjaldskrá, eða önnur sérkjör, bauð Póstur og sími stjórnmálasamtökum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 1994 og alþingiskosningarnar 1995?
    Hvert var umfang viðskiptanna og hvað má meta ívilnanir stofnunarinnar til mikils fjár?
    Hvaða skilyrði þurfa framboð að uppfylla til að njóta þessara kjara?


Skriflegt svar óskast.