Samningsveð

Fimmtudaginn 30. janúar 1997, kl. 11:38:05 (2881)

1997-01-30 11:38:05# 121. lþ. 59.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur

[11:38]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Það sem hæstv. dómsmrh. er að spyrja um kemur þessu máli bara hreint ekkert við. Hann er að fara út í allt aðra sálma af því hæstv. ráðherra veit að hann hefur ekki góða samvisku í þessu máli. Við erum að fara hér út í mjög alvarlega hluti sem er veðsetning á kvótanum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum og það er það sem við stöndum frammi fyrir varðandi það mál sem hér er til umræðu.