Birna Sigurjónsdóttir fyrir KH

Mánudaginn 03. febrúar 1997, kl. 15:02:35 (2974)

1997-02-03 15:02:35# 121. lþ. 60.1 fundur 164#B Birna Sigurjónsdóttir fyrir KH#, SP
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[15:02]

Frsm. kjörbréfanefndar (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 3. varaþingmanns Samtaka um kvennalista í Reykn., Birnu Sigurjónsdóttur aðstoðarskólastjóra, sem landskjörstjórn gaf út 31. janúar sl., en 1. og 2. varaþingmaður samtakanna í kjördæminu, Bryndís Guðmundsdóttir kennari og Kristín Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, geta ekki tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.

Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.