Siv Friðleifsdóttir:
Herra forseti. Stjórn ÁTVR kynnti í síðustu viku framtíðarstefnu sína. Þar er sumt jákvætt en annað neikvætt. Það jákvæða er að stefnt er að lækkun á bjór og léttvíni. Hið neikvæða er að það á að taka tóbakið út úr ÁTVR, sem Framsfl. hefur reyndar hafnað. Það koma einnig fram hugmyndir um að taka létt vín og bjór inn í almennar verslanir. Auðvitað er það jákvætt fyrir neytendur en það getur verið neikvætt gagnvart aðgengi ungmenna að áfengi þannig að fórnarkostnaðurinn getur orðið mikill. Þar verðum við að velja og hafna og spyrja okkur þeirrar spurningar hvort þetta sé æskilegt.
Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. í fyrsta lagi: Eiga einungis viðskiptasjónarmið að ráða gagnvart sölu á tóbaki og áfengi?
Í öðru lagi: Hvernig samrýmist stefna hæstv. fjmrh. í málefnum ÁTVR stefnu ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum, sem kynnt var opinberlega 3. des. 1996?