Undirbúningur kjarasamninga og áhrif nýrra vinnumarkaðslaga

Mánudaginn 03. febrúar 1997, kl. 17:33:50 (3029)

1997-02-03 17:33:50# 121. lþ. 60.95 fundur 166#B undirbúningur kjarasamninga og áhrif nýrra vinnumarkaðslaga# (umræður utan dagskrár), VS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[17:33]

Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. þurfti ekki að halda þessa ræðu sérstaklega yfir mér því að mér er þetta mjög vel kunnugt. Ég held að hv. þm. fylgist ekki alveg nægilega vel með því að tekin hefur verið ákvörðun um það á þessu ári að taka á jaðarskattavandamálinu og verja til þess hundruðum milljóna króna. Ég lét einnig koma fram í máli mínu að það væri forgangsatriði og eitt af því sem við framsóknarmenn töluðum um fyrir kosningar að þyrfti að gera. Og við ætlum að sjálfsögðu að standa við það.