Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil undirstrika það sem ég hef áður nefnt að í kjarasamningum við opinbera starfsmenn til að mynda þá hefur samninganefnd ríkisins þegar komið fram með þau sjónarmið að það beri í þessari kjarasamningsgerð að taka á þeim vanda sem kynbundin launamunur er. Samninganefndin hefur með vitund og vilja hæstv. fjmrh. þegar sett þessi sjónarmið fram. En úr þessum ræðustól og hér og nú eru ekki efni til að fara út í þau mál í einstökum atriðum eins og menn átta sig auðvitað á.