Tilkynning um dagskrá

Miðvikudaginn 05. febrúar 1997, kl. 13:36:01 (3101)

1997-02-05 13:36:01# 121. lþ. 62.91 fundur 173#B tilkynning um dagskrá#, Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 62. fundur

[13:36]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill tilkynna tvær utandagskrárumræður. Sú fyrri hefst kl. 3 síðdegis um kynningu Markaðsskrifstofu iðnrn. og Landsvirkjunar fyrir erlenda fjárfesta. Málshefjandi er Hjörleifur Guttormsson og iðnrh. verður til andsvara. Sú síðari verður kl. 3.30 um kynferðislega misnotkun á börnum. Málshefjandi er Jóhanna Sigurðardóttir og dómsmrh. verður til andsvara. Umræðurnar fara fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og munu því standa í hálftíma hvor.