Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda er í núgildandi skotvopnalögum að finna heimild fyrir dómsmrh. að setja skorður við meðferð annarra vopna en skotvopna. Sú heimild hefur verið nýtt í reglugerð frá 1978 sem m.a. bannar hnífaburð á almannafæri nema í undantekningartilvikum. Einnig er bannað samkvæmt reglugerðinni að flytja inn, framleiða eða eiga hníf ef blaðið er lengra en 12 sm. Dómsmrn. hefur haft framkvæmd reglugerðarinnar með höndum og má segja að umræddu banni hafi verið stranglega fylgt eftir. Beiðnum um heimildir til innflutnings á eggvopnum sem falla undir ákvæði reglugerðarinnar hefur þannig á síðustu missirum undantekningarlaust verið synjað.
Annað mál er að fleiri eggvopn geta valdið hættu en þau sem falla undir fyrrgreint ákvæði reglugerðarinnar. Einnig er ljóst að umræddar reglur eru um margt úreltar.
Í febrúar á síðasta ári skipaði ég því nefnd sem falið var að endurskoða gildandi lög og reglugerðir um skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skotelda. Nefndin lauk störfum síðsumars þegar hún skilaði tillögum að lagafrv. og nýrri reglugerð. Í starfi sínu hafði nefndin mjög gott samstarf við félög á sviði skotfimi og skotveiða. Meginforsendan í vinnu nefndarinnar var sú að vopn væru hættulegt tæki sem almennt bæri að koma í veg fyrir að höfð væru um hönd nema í undantekningartilvikum þar sem notkun þeirra styddist við gild rök. Með þetta í huga lagði nefndin til að hugtakið ,,vopn`` yrði skilgreint á nokkuð víðtækan hátt þannig að ótvírætt yrði að m.a. hvers konar hættuleg eggvopn féllu þar undir. Jafnframt var það sett sem markmið að binda skilgreininguna við tilteknar aðstæður og leitast þannig við að flokka frá þær aðstæður þar sem handhöfn vopna er eðlileg, svo sem við vinnu.
Í frumvarpsdrögum nefndarinnar eru nákvæm ákvæði um hnífaburð. Þar er lagt til að allur hnífaburður verði bannaður á almannafæri hvernig sem hnífurinn annars er gerður úr garði og er þessi tillaga fram komin í ljósi þess að voðaverk hafa verið framin með slíkum vopnum enda þótt blaðið hafi verið stutt.
Jafnframt er í drögunum ákvæði sem bannar að flytja til landsins, framleiða, eignast eða hafa í vörslum sínum hnífa sem gerðir eru til þess að vera árásarvopn. Mikilvæg breyting frá núgildandi reglum felst í þeirri tillögu að banna einnig vörslu slíkra hnífa en þá takmörkun er ekki að finna í gildandi löggjöf. Enn fremur má geta þess að tillaga er gerð um ótvíræða heimild til upptöku hnífa sem bannaðir yrðu samkvæmt lögunum ef frv. verður að lögum. Frumvarpsdrög nefndarinnar eru nú til lokafrágangs í dómsmrn. og þess er að vænta að unnt verði að leggja frumvarpið fyrir Alþingi á næstunni, en fullyrða má að verði tillögur nefndarinnar teknar til greina, þá felist í þeim að verulega verður komið til móts við þörfina á að takmarka rétt manna til þess að eiga og nota hættuleg eggvopn.