Tilkynning um dagskrá

Mánudaginn 10. febrúar 1997, kl. 16:06:48 (3237)

1997-02-10 16:06:48# 121. lþ. 65.92 fundur 181#B tilkynning um dagskrá#, Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur

[16:06]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Formaður þingflokks Alþb. hefur óskað eftir því að atkvæðagreiðslu um 4. dagskrármálið verði frestað og verður forseti við þeirri ósk.

Forseti vill geta þess vegna þess að atkvæðagreiðslu um 4. dagskrárlið er frestað að það mál mun koma til afgreiðslu í upphafi fundar á morgun, þ.e. stjfrv. um Landsvirkjun, og verður þá gengið til atkvæðagreiðslu í upphafi þingfundar á morgun.