Áfengis- og vímuvarnaráð

Mánudaginn 10. febrúar 1997, kl. 16:19:24 (3241)

1997-02-10 16:19:24# 121. lþ. 65.5 fundur 232. mál: #A áfengis- og vímuvarnaráð# frv., LMR (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur

[16:19]

Lára Margrét Ragnarsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Sem efsti maður á lista heilbrn. mun ég gera mitt besta til að þetta mál verði unnið hratt. Við vitum held ég öll, þingmenn, vel hvernig ástatt er í þessum málum á Íslandi og hversu hratt vímuefnaneyslan eykst og hversu alvarleg hún er að verða með tilliti til þeirra tegunda vímuefna sem fólk er farið að nota nú. Ég er því sammála hæstv. heilbrrh. í því að það þurfi að vinna þetta verkefni mjög hratt en jafnframt á þann máta sem hagkvæmastur er.