Landsvirkjun

Miðvikudaginn 12. febrúar 1997, kl. 15:12:45 (3432)

1997-02-12 15:12:45# 121. lþ. 69.1 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., iðnrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur

[15:12]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Þar sem komið er að lokaafgreiðslu þessa máls vil ég þakka fyrir málefnalega umræðu um málið í þinginu. Sérstaklega vil ég þakka hv. iðnn. fyrir vandlega yfirfarin mál og vel unnin störf af hálfu nefndarinnar en það gleður mig sérstaklega nú við lokaatkvæðagreiðsluna hversu víðtæk pólitísk samstaða mér sýnist vera að myndast um þetta mál og segi því já.