Guðrún Helgadóttir:
Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra er hér farinn ofurlítið út fyrir það sem við erum að tala um. Við erum ekki að ræða þetta mál efnislega. Ég ætla ekki hæstv. ráðherra það að hann hafi vísvitandi ætlað að svipta varnaraðila í reynd rétti eins og segir í dómi Hæstaréttar. En hann gerði það. Og það er alvara málsins. Þess vegna hljótum við að spyrja, hæstv. forseti, hver er staðan þá núna? Er hæstv. dómsmrh. opinberlega í stríði við hæstarétt landsins? Við það verður ekki unað. Fram úr því verður einhvern veginn að ráða. Og ég verða að játa, hæstv. forseti, að ég kann ekki nema eitt ráð við því. Það var það ráð sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson svo skarplega stakk upp á hér áðan. En ég skal ekkert vera að leggja til hvernig þetta mál yrði leyst, en eitt veit ég, í lýðræðisríki getur dómsmrh. ekki haft afstöðu og dóma Hæstaréttar að engu. Og hæstv. forseti Alþingis getur heldur ekki við það unað. Stjórnsýsla okkar er þannig að þessir hlutir verða að vera í lagi. Þess vegna hljótum við að spyrja: Hver er afstaða hæstv. dómsmrh. til Hæstaréttar Íslands? Telur hann að hann fari með fleipur í þessum dómi?