Þjónusta við einhverf börn

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 15:20:21 (3515)

1997-02-17 15:20:21# 121. lþ. 71.1 fundur 193#B þjónusta við einhverf börn# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[15:20]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Fjárlög ársins hafa nú þegar verið ákveðin, eins og hv. þm. er áreiðanlega kunnugt um, og við verðum auðvitað að búa við þau fjárlög sem búið er að setja. Ég reikna með því að við komum þessu fagteymi á fót og reynum að leysa þá fjárþörf sem fyrir hendi er eða fyrir hendi verður.