Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 17:18:50 (3552)

1997-02-17 17:18:50# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[17:18]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir, þetta er ekki aðeins óheppilegt, það er óviðunandi að standa ekki við áætlanir sem hafa verið samþykktar á hv. Alþingi. Menn eiga auðvitað ekki að una við það og ég treysti því að hv. þm. muni sýna það þegar kemur að afgreiðslu þessa máls að hann er ekki sammála því að málið sé afgreitt á þennan hátt að ekki sé staðið við þær áætlanir sem hafa verið gerðar. Ég bíð því spennt eftir því að hann sýni það í verki að hann er á móti því að svona vinnubrögð séu viðhöfð.