Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 18:09:14 (3573)

1997-02-17 18:09:14# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., KPál (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[18:09]

Kristján Pálsson (andsvar):

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir að hæstv. samgrh. hafi verið að svara spurningu minni áðan um það hvernig staðið hafi verið að viðræðum við sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu um niðurskurð á framkvæmdum gegn ákveðnum framkvæmdum í vegamálum. Mér fannst ég ekki fá nægilega skýrt svar við því hvernig hefði verið staðið að þessum viðræðum, hverjir hafi verið boðaðir og hvort þessum viðræðum sé í rauninni lokið. Ég bið hæstv. samgrh. að upplýsa þingheim um það.