Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Borgarstjóri hafði samband við mig með formlegum hætti. Við áttum fund og um það var rætt hvort við værum til viðræðu um að ráðast í Ártúnsbrekku þrátt fyrir þá ákvörðun sem tekin hafði verið um að láta vegaframkvæmdir hér liggja niðri, enda yrði öðrum framkvæmdum á vegum borgarinnar frestað í staðinn. Ég hafði áður lýst því yfir að það væri skoðun mín að rétt væri að láta Ártúnsbrekkuna sitja fyrir. Það hafa ýmsir þingmenn haft orð á því að Ártúnsbrekkan sé slysagildra, ég held að vísu að of mikið sé úr því gert og vona að ég geti staðið við þau orð að ekki verði alvarlegt slys í Ártúnsbrekkunni. En eigi að síður hafa þessar umræður átt sér stað og ég mun leggja málið fyrir ríkisstjórn í fyrramálið.