Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 18:36:07 (3585)

1997-02-17 18:36:07# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[18:36]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það hefur hvergi komið fram í máli mínu að ég hafi gagnrýnt það samráð sem hæstv. ráðherra á við borgarstjóra, alls ekki. Ég tel það jákvætt ef hann sér að það verður ekki við svo búið að fara í þann niðurskurð sem lítur út fyrir að verði á höfuðborgarsvæðinu. En eins og ég sagði áðan og endurtek núna, þá er ekkert í hendi hver niðurstaðan verður úr þessum viðræðum hæstv. ráðherra við borgarstjórann, en auðvitað vonar maður að það þurfi ekki að koma til að farið verði í þennan niðurskurð sem hefur verið hér til umræðu.