Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. samgrh. veit bersýnilega í fylgsnum huga síns að hann hefur vondan málstað að verja. Þess vegna grípur hann til þess að hártoga orð mín og færa með heldur alvarlegu móti úr lagi það sem ég sagði áðan. Ég sagði aldrei í ræðu minni að hæstv. samgrh. væri það mest í mun að stefna í tvísýnu lífi og limum Íslendinga. Það er algerlega fráleitt. Ég sagði hins vegar: Trúnaðarmenn hæstv. samgrh., flugráð, hefur í tilefni af þessari aðgerð hæstv. ráðherra gert samþykkt sem felur tvennt í sér. Í fyrsta lagi mótmælir það einróma og harkalega niðurskurðaráformum. Í öðru lagi bendir það á að það sé í andstöðu við öryggishagsmuni þeirra sem nota þennan flugvöll. Flugráð hefur bókstaflega sagt að það sé nauðsynlegt að verja fjármagni til þess að bæta úr þeim skorti á öryggi sem þar er að finna.
Ég spurði hæstv. samgrh. vegna þess að ég veit að hann er drengur góður og vill það sem rétt er. Er það þá ekki svo að hann hafi í fórum sínum einhvers konar úttekt á öryggismálum sem sýni fram á það að flugráð tók of stórt upp í sig þegar það gerði þessar samþykktir? Og hvert var svar hæstv. ráðherra? Það var ekki eitt einasta orð um öryggismál. Hann sagði ekkert um það. Og ég spyr enn hæstv. samgrh.: Hefur hann undir höndum úttekt á öryggismálum Reykjavíkurflugvallar eða hyggst hann láta gera einhverja slíka úttekt?
Í annan stað, herra forseti, vék ég að þeim rökum sem hæstv. ráðherra hefur uppi um þenslu á Reykjavíkursvæðinu og hann notar til þess að skera niður þjóðþrifaframkvæmdir á svæðinu og sýndi fram á að þau voru hjóm eitt. Hæstv. ráðherra hefði verið í lófa lagið ef staðhæfingar mínar væru rangar að koma og sýna fram á það með einhvers konar rökum. Hann gerði ekki einu sinni tilraun til þess vegna þess að þetta er rétt. Það er ekki fótur fyrir þessu og yfirlýsing liggur líka fyrir af hálfu borgarstjórans um að meiri hlutinn í Reykjavík er reiðubúinn til að reyna að draga úr þenslu ef í ljós kemur að hún birtist.