Samanburður á launakjörum iðnaðarmanna

Miðvikudaginn 19. febrúar 1997, kl. 14:43:03 (3720)

1997-02-19 14:43:03# 121. lþ. 73.5 fundur 329. mál: #A samburður á launakjörum iðnaðarmanna# fsp. (til munnl.) frá iðnrh., SJóh
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur

[14:43]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra alveg sérstaklega fyrir þennan stórmerkilega spurningaleik sem hér hefur verið leikinn. Ég vil benda þingheimi alveg sérstaklega á að þarna er fundin lausnin við framkvæmd þeirra tillagna sem Alþb. hefur verið með hér í vetur, að stytta vinnutíma og hækka jafnframt laun. Þarna getur ríkisstjórnin sest yfir þessa frábæru lausn úr Straumsvík og gert eins fyrir sitt fólk. Fundið upp sporslur eins og hæstv. ráðherrann taldi hér upp endalausar sem hækka taxtana þannig að hægt sé að lifa af þeim. Ég vil þakka alveg sérstaklega fyrir þetta sem hér hefur komið fram og vona að eftir því verði farið.