Stuðningur við konur í Afganistan

Fimmtudaginn 20. febrúar 1997, kl. 14:26:40 (3804)

1997-02-20 14:26:40# 121. lþ. 75.9 fundur 69. mál: #A stuðningur við konur í Afganistan# þál., Flm. KÁ
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur

[14:26]

Flm. (Kristín Ástgeirsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Margréti Frímannsdóttur fyrir orð hennar. Ég tek undir það að ég vona að þessi tillaga fái skjóta og góða afgreiðslu. Þetta er auðvitað fyrst og fremst innlegg í umræðu og ábending til stjórnvalda.

En ég vil líka bæta úr því sem ég gleymdi áðan, hæstv. forseti, og vísa tillögunni til síðari umræðu og hv. utanrmn.