Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil taka undir efni tillögunnar. En vegna orða sem féllu áðan um skaðsemi hljóðmengunar þá vildi ég gjarna koma á framfæri vitneskju minni um það efni en sú vitneskja er fengin með því að lesa um tilraun eða könnun sem var gerð á þessu og gæti orðið Magnúsi til nokkurrar huggunar. En það mun vera þannig að tónlist, þó að hátt sé spiluð eyðileggur ekki heyrnina hjá þeim sem líkar tónlistin. Hún hins vegar skemmir eyru annarra sem líkar hún miður, þ.e. það virðist vera svo að ef einhverjum líkar illa sá streituvaldur sem hávaðinn er þá eyðileggur hann heyrnina en það er hægt að þola ótrúlega mikinn samfelldan hávaða ef viðkomandi líkar hávaðinn eða í flestum tilfellum þá væntanlega sú tónlist sem verið er að spila. Þetta hef ég sagt sjálfri mér til huggunar á meðan synir mínir hafa farið í gegnum rokktímabilin sín.