Staða drengja í grunnskólum

Fimmtudaginn 20. febrúar 1997, kl. 16:26:35 (3823)

1997-02-20 16:26:35# 121. lþ. 75.13 fundur 227. mál: #A staða drengja í grunnskólum# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur

[16:26]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Vegna ræðu hv. þm. Hjálmars Jónssonar um sjálfsvíg þá er mjög mikilvægt að við áttum okkur á að t.d. þetta kynjamynstur sem hér kemur fram, það kemur fram alls staðar í heiminum og einnig að það er yfirleitt mikil fjölgun núna í löndunum í kringum okkur á sjálfsvígstíðni ungra pilta. Því held ég að það sé mikilvægt að við áttum okkur á að þetta eru ekki bara íslenskir drengir hér og nú heldur er þetta partur af stærra samhengi.