Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Á fyrsta starfsdegi þingsins lagði þingflokkur Alþb. og óháðra fram beiðni um skýrslu þar sem við óskum eftir því að hæstv. félmrh. léti fara fram könnun á afleiðingum langs vinnutíma hér á landi. Það sem átti að kanna sérstaklega var áhrif langs vinnutíma á kjör launafólks, framleiðni fyrirtækja og afkomu þeirra, slysa- og veikindatíðni og fjölskyldulíf. Þessi skýrsla er nú komin hér eftir rúma fjóra mánuði. Hún er upp á fjórar blaðsíður. Það hefur ein síða verið unnin á mánuði. Svörin eru engin og ekki gerð tilraun til þess að svara þeim spurningum sem fram komu í skýrslubeiðninni. Í niðurlagi segir, með leyfi forseta:
,,Ítarlegri og umfangsmeiri úttekt krefst umtalsverðra fjármuna og mannafla. Ef Alþingi telur brýnt að ráðast í slíka úttekt er ekki óeðlilegt að hún verði framkvæmd á grundvelli sérstakrar þingsályktunar.``
Nú vill þannig til að Alþingi, allir hv. þm. sem þá voru í salnum, samþykktu þessa skýrslubeiðni. Því finnst mér með ólíkindum að fá eftir fjögurra mánaða bið þessa niðurstöðu og vil beina fyrirspurn til hæstv. forseta: Eru þetta eðlileg vinnubrögð? Hvað þýðir það þegar hv. Alþingi samþykkir beiðni um skýrslu?