Flm. (Gunnlaugur M. Sigmundsson) (andsvar):
Herra forseti. Hér er talað um að verið sé að vekja upp draug. Ég gerði mér ekki grein fyrir að málið væri svo viðkvæmt að þetta hefði verið draugur á sínum tíma sem flm. teldi að búið væri að kveða niður. Ég held að öll mál sem snerta svo stóra hluti, eins og ég er að vekja máls á, þ.e. að hugsanlega sé verið að höggva að 72. gr. stjórnarskrárinnar, verði að skoða ofan í kjölinn.
Hvort málið fari til umhvn. eða landbn. snýst ekki um hvort menn vænti meiri stuðnings við málið í landbn. Það snýst einfaldlega um að hér er alfarið verið að fjalla um málefni landeigenda og ábúenda að jörðum, þ.e. fyrst og fremst málefni bænda. Þess vegna hefði mér fundist eðlilegra að landbn. fjallaði um málið. Málið snertir ekki umhverfismál á nokkurn hátt, ekki á hinn minnsta hátt þannig að ég get ekki séð af hverju málið ætti yfir höfuð að ganga til umhvn. þrátt fyrir að fjallað hafi verið um þetta lagafrv. sem lagt var fyrir og varð síðan að lögum nr. 64/1994 og hafi verið í skoðun í umhvn., þá varðar þetta frv. sem hér er flutt hag bænda landsins.