Tómas Ingi Olrich:
Virðulegi forseti. Sá sem hér stendur stýrði þessu stefnumótunarstarfi og hafði af því sérstaka ánægju að brjóta þennan texta úr viðjum stofnanamálsins. Ég fagna því að sveigt er svolítið að þjóðareinkennum Íslendinga í innganginum og tek sérstaklega fram að þar sem fjallað er um þjóðrækni og norræna kergju er alls ekki vikið að hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni frekar en öðrum hér á landi þó að þeir hafi að sjálfsögðu átt til að grípa til þjóðrækni sem er góðs viti og kergju stundum í og með.
Ég vil benda á það sérstaklega að í lokakafla þessa rits er fjallað um framkvæmd málsins og þar eru skilgreind nokkur áherslu- og forgangssvið. Þar á meðal eru menntamál og flutningsgeta og flutningsöryggi og lágmörkun kostnaðar við þessa þætti. Ég vil aðeins benda á það, til þess að undirstrika að við erum mjög langt komin á þessari braut og stöndum vel, að í dag nær breiðband til rúmlega 20 þúsund heimila á Íslandi, en heimilin eru 80--90 þúsund og vonir standa til að í lok ársins nái breiðbandsvæðing til 30 þúsund heimila sem er mjög góð staða og sýnir hvað Íslendingar hafa sterka stöðu á þessu sviði borið saman við Evrópuþjóðir.