Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 18:30:06 (4007)

1997-02-26 18:30:06# 121. lþ. 79.2 fundur 171. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (heildarlög) frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur

[18:30]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Um árabil hafa kjararannsóknir og kjararannsóknarnefnd fengið fjárveitingar úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Það stóð til að breyta því en reyndar er óljóst hver ætlunin er eða hvað menn ætla að gera í því en svo mikið er víst að kjararannsóknir eiga ekki heima í Atvinnuleysistryggingasjóði. Á þessu verður ríkisstjórnin að bera ábyrgð og því greiði ég ekki atkvæði með þessari brtt.