Vinnumarkaðsaðgerðir

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 18:43:01 (4015)

1997-02-26 18:43:01# 121. lþ. 79.3 fundur 172. mál: #A vinnumarkaðsaðgerðir# frv., félmrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur

[18:43]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ef einhver fótur væri fyrir þessum skringilegum tilgátum þá væri hér náttúrlega kjörið tækifæri til atvinnusköpunar í landinu. En það vill nú svo til að þessi störf eru unnin þegar í dag að flestu leyti og þar af leiðandi er þetta mjög mikill misskilningur og mistúlkun hjá hv. þm.