Vinnumarkaðsaðgerðir

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 18:49:12 (4017)

1997-02-26 18:49:12# 121. lþ. 79.3 fundur 172. mál: #A vinnumarkaðsaðgerðir# frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur

[18:49]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Í þessari grein er kveðið á um skipan svæðisráða sem enginn veit hversu mörg verða. Ef gengið er út frá kjördæmum landsins þá verða þau minnst átta sem þýðir að það verða 72 sem koma að þeirri ráðgjöf sem þar á að veita. Mér þykir skipan í þessi ráð vera allt of þröng og hef efasemdir um það að fulltrúar framhaldsskólanna eigi heima í þessum ráðum og því greiði ég atkvæði gegn þessari grein.