Flm. (Ágúst Einarsson):
Herra forseti. Ég vil þakka þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu fyrir undirtektir við tillöguna um að gera úttekt á áhrifum Efnahags- og myntbandalags Evrópu á íslenskt efnahagslíf. Ég held að það sé alveg rétt sem hv. þm. Kristín Ástgeirsdóttir sagði hér áðan að það má vera full ástæða til þess að Alþingi kanni líka sérstaklega þennan málaflokk því að eins og ég nefndi og hefur komið fram í umræðunni þá er um fátt meira rætt í stjórnmálum og efnahagslífi í Evrópu en einmitt þetta fyrirhugaða efnahags- og myntsamstarf.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson tók einnig undir efni tillögunnar í meginatriðum. Ég vil taka fram að þegar ég var að ræða um ummæli hæstv. forsrh., þá var ég einmitt að vitna til svars við fyrirspurn hv. þm. Kristínar Ástgeirsdóttur sem var hér í þingsölum fyrir nokkru síðan. Ég var ekki að vísa til áramótagreinar hæstv. forsrh. heldur svars hans hér við hinni beinu fyrirspurn hv. þm. Ég þekki afstöðu hæstv. forsrh. og hv. þm. Kristínar Ástgeirsdóttur og Hjörleifs Guttormssonar gagnvart Evrópusambandinu og hvort menn eigi þar að gerast aðilar eður ei. Um það snýst ekki þessi tillaga. Hún er sett upp af ráðnum hug. Það er ekki verið að taka afstöðu gagnvart þeim þáttum heldur fyrst og fremst verið að afla nauðsynlegra upplýsinga fyrir frekari umræðu um Evrópusamstarfið og aðkomu okkar að því. Það er m.a. þess vegna sem í tillögunni er sagt að að þessari nefndarskipan eigi að koma sérfræðingar á sviði hagstjórnar. Það má vel vera að nefndin kjósi ef málið nær fram að ganga að víkka það nokkuð út. Hins vegar er ákveðin hugsun fólgin í þessari framsetningu til að leggja áherslu á að hér er fyrst og fremst verið að gera vandaða úttekt á áhrifum og sú úttekt getur orðið og á að vera grunnur að frekari umræðu um aðkomu okkar að Evrópusamstarfinu því að eins og við vitum, þá skiptast menn þar mjög í flokka og hafa mismunandi skoðanir og það þarf að taka miklu fleiri þætti inn í þá umræðu heldur en gert er í þessari tillögu. Hér er verið að taka afmarkaðan þátt Evrópumála út úr sem hefur mikil áhrif á okkar efnahagslíf, vinna hann vandvirknislega þannig að við séum betur í stakk búin til að skiptast á skoðunum, vera sammála eða ósammála um Evrópumálin í víðu samhengi.