Húsnæðisstofnun ríkisins

Mánudaginn 03. mars 1997, kl. 15:32:28 (4098)

1997-03-03 15:32:28# 121. lþ. 82.1 fundur 221#B húsnæðisstofnun ríkisins# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur

[15:32]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég get verið sammála hv. ræðumanni um það, eins og þegar hefur komið þegar fram hjá mér, að hlutverk Húsnæðisstofnunar hlýtur að breytast. En það eru ákveðnir þættir sem er eðlilegt að almannavaldið hafi ítök með. Ég tel að það sé óhjákvæmilegt að við enn um sinn a.m.k. og væntanlega um langa framtíð leggjum nokkuð af mörkum til þess að aðstoða hina tekjuminni í þjóðfélaginu við að koma sér upp húsnæði.