Flm. (Svanfríður Jónasdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. ráðherra vill að menn séu frjálsir að því að gera ákveðna samninga. Það liggur alveg ljóst fyrir hvernig sjómenn vilja hafa þetta. Þeir vilja að það sé frjálst verð og að fiskurinn sé seldur á markaði. Ég hefði hins vegar gaman af að heyra hvernig hæstv. ráðherra sér lausn á því máli sem hann rakti hér áðan, þ.e. því að sjómenn eru látnir taka þátt í leigu eða kaupum á kvóta.
Vegna þess að hann gat ekki svarað spurningu minni um það áðan hversu margir hefðu náð að sérhæfa sig með því að vinna einungis fisk af eigin skipum, þá veit ráðherrann auðvitað mætavel alveg eins og ég að það tekst mönnum ekki. Menn verða annaðhvort að hafa aðgang að afla á markaði ellegar menn verða að geta framselt veiðiheimildir sínar með einhverjum hætti, þ.e. verslað með fiskinn í sjónum. Það er það vandamál sem sjómenn horfa mest á. Vinnslan horfir kannski meira á möguleika þess að geta keypt fisk á markaði vegna þess að það er ekki öll vinnsla í landinu sem getur verslað með fiskinn í sjónum. Þar liggur mismunur sem við viljum láta taka á. Það er ákveðinn skipulagsvandi í þessu kerfi. Ef hæstv. ráðherra er með einfalda lausn á þeim skipulagsvanda, þá vil ég gjarnan heyra hana en ég hef ekki heyrt hana enn.