Magnús Aðalbjörnsson fyrir SvanJ

Mánudaginn 10. mars 1997, kl. 15:08:41 (4222)

1997-03-10 15:08:41# 121. lþ. 86.2 fundur 232#B Magnús Aðalbjörnsson fyrir SvanJ#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur

[15:08]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hafa eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég af einkaástæðum get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþm. Þjóðvaka í Norðurl. e., Magnús Aðalbjörnsson aðstoðarskólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni og forföllum 1. varaþm. flokksins í Norðurl. e.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari á Alþingi rannsókn á kjörbréfi varaþingmannsins.

Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e.``

Hitt bréfið er svohljóðandi:

,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Svanfríðar Jónasdóttur, 6. þm. Norðurl. e. á Alþingi, sem 1. varaþm. Þjóðvaka í Norðurl. e.

Virðingarfyllst, Vilhjálmur Ingi Árnason.``

Kjörbréfanefnd kom saman áður en þingfundur hófst til að rannsaka kjörbréf Magnúsar Aðalbjörnssonar.