Magnús Aðalbjörnsson fyrir SvanJ

Mánudaginn 10. mars 1997, kl. 15:09:10 (4223)

1997-03-10 15:09:10# 121. lþ. 86.2 fundur 232#B Magnús Aðalbjörnsson fyrir SvanJ#, SP
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur

[15:09]

Frsm. kjörbréfanefndar (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Þjóðvaka, hreyfingar fólksins, í Norðurl. e., Magnúsar Aðalbjörnssonar, sem landskjörstjórn gaf út þann 6. mars 1997 en 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Vilhjálmur Ingi Árnason getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum anna.

Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.