Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Fimmtudaginn 13. mars 1997, kl. 18:59:08 (4455)

1997-03-13 18:59:08# 121. lþ. 90.3 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins# frv., 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., viðskrh. (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur

[18:59]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er ljóst að hér er um stjórnarfrv. að ræða. Hér eru engin ný tíðindi á ferðinni. Það var löngu vitað áður en þetta frv. var lagt fram að einn þingmaður Framsfl., hv. þm. Gunnlaugur Sigmundsson, hafði athugasemdir við málið og var í andstöðu við það. Hér eru engin tíðindi að gerast.