Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Mánudaginn 17. mars 1997, kl. 15:44:14 (4520)

1997-03-17 15:44:14# 121. lþ. 91.1 fundur 250#B frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur

[15:44]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Það er rétt sem fram hefur komið í þessari fyrirspurn að það komu tillögur til mín frá námsmannahreyfingunum 6. febr. sl. Það hefur verið unnið úr þessum tillögum og frv. liggur nú fyrir, en það vantar kostnaðarmatið og að átta sig á því hvernig er unnt að fella þær hugmyndir sem við erum með innan þess ramma sem forsvaranlegur er með hliðsjón af þeim kostnaði sem af breytingunum hljótast.