Umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 17. mars 1997, kl. 15:52:56 (4529)

1997-03-17 15:52:56# 121. lþ. 91.1 fundur 252#B umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun# (óundirbúin fsp.), ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur

[15:52]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. umhvrh. svarið. Ég hefði gjarnan viljað heyra það frá hæstv. umhvrh. hvort hann telji ekki eðlilegt að fram fari umhverfismat vegna svo gífurlega mikilla framkvæmda. Það má reikna með því að margir mundu vilja koma fram athugasemdum sínum í ljósi þess að hér er um miklar náttúruperlur að ræða á framkvæmdasvæðinu.