Flugskóli Íslands hf.

Mánudaginn 17. mars 1997, kl. 16:26:05 (4541)

1997-03-17 16:26:05# 121. lþ. 91.6 fundur 152. mál: #A Flugskóli Íslands hf.# frv., Frsm. meiri hluta EKG
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur

[16:26]

Frsm. meiri hluta samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta samgn. um frv. til laga um Flugskóla Íslands hf.

Samgn. fjallaði um málið og fékk á sinn fund allnokkra aðila og kallaði að sjálfsögðu eftir umsögnum. Þess ber að geta að þetta frv. var lagt fram á síðasta þingi en hlaut ekki afgreiðslu þá. Samgn. bárust þá allmargar umsagnir og athugasemdir frá ýmsum aðilum. Frv. var síðan endurflutt á síðasta hausti með nokkrum breytingum frá fyrri gerð, m.a. með hliðsjón af framkomnum athugasemdum.

Í fyrsta lagi vil ég nefna að það sem áður var aðeins í athugasemdum frv., að nemendur skuli eiga þess kost að semja sjálfir við aðra flutskóla um afnot flugvéla eða leggja til eigin flugvélar, er nú sett inn í lagatextann sjálfan. Í öðru lagi eru felld út ákvæði sem kváðu á um að samgrh. skipi meiri hluta stjórnar. Í þriðja lagi er fellt niður ákvæði um að ríkissjóður skuli eiga að minnsta kosti 51% hlutafjár með því að eignarhlutur einstakra hluthafa er takmarkaður við 25% þannig að dreifing hlutafjárins á að vera tryggð.

Í frumvarpinu er lagt til að stofnað verði hlutafélag um rekstur Flugskóla Íslands. Ástæða þess að slíkt rekstrarform er valið er sú að með því er aðilum, sem hagsmuna eiga að gæta varðandi rekstur skólans, gefinn kostur á að gerast eignaraðilar að honum og hafa þannig áhrif á stefnu hans og viðgang. Engum einum aðila öðrum en ríkinu er þó heimilt að eiga meira en 25% hlutafjár samkvæmt frumvarpinu.

Virðulegur forseti. Ég vil einnig vekja athygli á því í þessu sambandi að loftferðaeftirlit Flugmálastjórnar hefur nú eftirlit með flugskólum samkvæmt reglugerð og Flugmálastjórn fer með framkvæmd og umsögn prófa og útgáfu atvinnuskírteina. Þess vegna er talið rétt að höggva á þau nánu rekstrarlegu tengsl sem hafa verið milli Flugmálastjórnar og skólans með stofnun sérstaks hlutafélags um Flugskóla Íslands hf.

Markmiðið með starfsemi Flugskóla Íslands hf. er að veita nemendum bestu menntun sem völ er á hverju sinni og stefnt er að því að nemendur útskrifist með skírteini sem viðurkennd verði af Samtökum loftferðaeftirlita í Evrópu, Joint Aviation Authorities (JAA).

Í 7. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að stofnfund hlutafélagsins skuli halda samkvæmt ákvörðun samgönguráðherra í samráði við þá sem hann kveður til samstarfs. Meiri hluti nefndarinnar telur rétt að tryggja að allir eigi jafna möguleika á að sækja stofnfund og að fundurinn verði auglýstur opinberlega. Með því er átt við að fundurinn verði auglýstur í blöðum eða á annan sannanlegan hátt. Meiri hlutinn leggur þess vegna til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Fyrri málsliður 1. mgr. 7. gr. orðist svo: Samgönguráðherra skal auglýsa opinberlega fund um stofnun hlutafélags um rekstur Flugskóla Íslands.

Árni Johnsen var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. skrifa Einar K. Guðfinnsson, form. og frsm., Magnús Stefánsson, Egill Jónsson, Stefán Guðmundsson og Kristján Pálsson.