Alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð

Þriðjudaginn 18. mars 1997, kl. 14:29:52 (4578)

1997-03-18 14:29:52# 121. lþ. 92.7 fundur 199. mál: #A alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[14:29]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hv. ræðumanns vil ég segja að ég stefni að því að þetta mál komi fyrir þing nú í vor. Ég hef hins vegar ekki farið ofan í þá sérkjarasamninga sem gerðir hafa verið og veit ekki nógu vel hvað í þeim stendur. Það þarf að athuga það áður en ég gef yfirlýsingar um dagsetningar. En minn hugur stendur til þess að málið verði afgreitt í vor.