Álbræðsla á Grundartanga

Fimmtudaginn 20. mars 1997, kl. 17:27:31 (4770)

1997-03-20 17:27:31# 121. lþ. 95.1 fundur 445. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur

[17:27]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Það eru fáir hv. þm. sem ég hef hlustað á með jafnmikilli athygli ræða um umhverfismál og sá hv. þm. sem hér áðan stóð, hv. þm. Hjörleifur Guttormsson. Og sé það svo --- eftir allt það sem ég hef hlustað á þann hv. þm. --- að ég hafi komið upp í ræðustólinn áðan og ekkert vitað um hvað ég var að tala og ekki botnað neitt í neinu og ekkert skilið þá segir það ekki góða sögu um þann hv. kennara sem ég hef haft fyrir mér í þessum efnum.