Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessi svör. Mér finnst þetta fínt sem hann sagði og skynsamlegt að mörgu leyti að beita Rarik eins og hér er lagt til og hæstv. ráðherra skýrði. Það kallar auðvitað á ýmiss konar frekari spurningar og umræður í iðnn. og við förum í það. Ég vil einnig óska hæstv. ráðherra til hamingju með að hafa leitt Sjálfstfl. út á þessa braut í félagslegum rekstri í landinu.