Árni M. Mathiesen (andsvar):
Herra forseti. Varðandi seinasta atriðið sem hv. þm. nefndi, þá er alveg ljóst í þessu frv. --- ég hef víst tekið vitlaust frv. hérna með mér upp --- að það sama á við um sveitarfélögin. Yfir 200° hiti er nýttur á Nesjavöllum til virkjunar orku til að framleiða raforku. Sá réttur mundi hafa fallið til ríkisins og Reykjavíkurborg einungis getað virkjað þetta á undanþáguákvæði af því að hún er þegar byrjuð að virkja þar.
Ég varaði við því í ræðu minni áðan að rugla þessu máli saman við það mál sem fjallar um þjóðlendurnar. Það fjallar ekki um þennan rétt sem hér er um að ræða. Það fjallar um að skilgreina og skýra eignarréttinn á afréttum og almenningum og síðan þeim löndum þar sem eignarrétturinn er talinn vera beinn og reyndar gera skýran greinarmun á beinum og óbeinum eignarheimildum á afréttum og almenningum.